Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir skólaliða frá 1. desember 2018
Um er að ræða 50% stöðu við Kleppjárnsreykjadeild skólans.
Vinnudagurinn er frá 8-16 en og er unnið miðvikudag, fimmtudag og föstudag aðra vikuna og fimmtudag og föstudag hina vikuna.
Starf skólaliða felst m.a. í ræstingu, leiðsögn og umsjón með börnum í leik og starfi.
Mikilvægt er að umsækjendur hafi góða færni í mannlegum samskiptum og hafi gaman af því að vinna með börnum og ungmennum.
Frekari upplýsingar veitir Helga Jensína Svavarsdóttir skólastjóri í síma 8611661 eða Ingibjörg Adda Konráðsdóttir deildarstjóri í síma 840 1520
Umsóknarfrestur er til 16. nóvember. Sendið umsókn á netfangið helga.jensina.svavarsdottir@gbf.is