Grunnskólakennarar takið eftir!

júní 3, 2013
Grunnskólinn í Borgarnesi leitar að grunnskólakennurum frá upphafi næsta skólaárs til að koma til liðs við öflugan starfsmannahóp sem fyrir er. Skólinn vinnur eftir stefnunni Uppeldi til ábyrgðar og er Grænfánaskóli síðan 2006.
Leitað er eftir sérkennara og kennara í almenna bekkjarkennslu. Menntun sem nýtist í starfi er áskilin.
Ef þessi störf vekja áhuga sem og hinn fagri Borgarfjörður þá endilega hafa samband við skólastjóra og kanna málið frekar. Síminn er 437-1229/Gsm 898-4569 og netfangið er kristgis@grunnborg.is Á heimasíðu skólans www.grunnborg.is og heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is er ennfremur að finna ýmsar upplýsingar sem að gagni geta komið.
Umsóknarfrestur um þessi störf er til 10. júní.
Skólastjóri
 

Share: