

Markmið með Grænfánaverkefninu er að auka menntun og þekkingu og efla virðingu fyrir náttúru og umhverfi lands og hafs. Einnig að stuðla að góðri umgengni og sjálfbærri nýtingu allra auðlinda og vinna gegn hvers konar mengun og umhverfisspjöllum.
Þróunarverkefni sem þetta snýst fyrst og fremst um að breyta menningu og viðhorfum nemenda og starfsfólks. Það að ganga vel um og fara vel með það sem okkur er treyst fyrir er eins og rauður þráður í skólastarfinu.