Götusópun í Borgarnesi og á Hvanneyri

apríl 21, 2009
Í næstu viku verða gangstéttar og götur sópaðar í Borgarnesi og á Hvanneyri. Íbúar eru vinsamlega hvattir til að leggja bílum sínum þannig að sópun geti gengið greiðlega.
Borgarbyggð hefur þjónustusamning við HS-Verktak um götusópun, en undirverktaki á hans vegum mun annast verkið. Hafa má samband við Halldór hjá HS-Verktak í síma 892-3044 varðandi ábendingar eða nánari upplýsingar um verkið.
 

Share: