Göngustígagerð í Sóltúnshverfi og nágrenni á Hvanneyri

desember 31, 2008
Lagður hefur verið göngustígur og malbikaður við Sóltúnshverfið á Hvanneyri meðfram Túngötunni. Frá þeim stíg var lagður göngustígur inn í Sóltúnshverfið auk þess var lagður stígur til móts við þann stíg, hinu megin við Túngötuna og sá sameinast síðan gangstéttinni sem liggur að grunnskólanum.
Verktaki var Jörvi ehf, Hvanneyri. Verkið var samningsverk. Efnisskipti og fyllingar voru unnin árið 2007 en malbik lagt á haustið 2008.
Mynd: Sigurjón Einarsson

Share: