Góð aðsókn í Safnahús Borgarfjarðar

janúar 8, 2014
Áhugasamir gestir í Safnahúsi
Mjög góð aðsókn var á sýningar í Safnahúsi Borgarfjarðar á síðasta ári. Gestir sem skoðuðu sýningar Safnahúss á árinu 2013 voru tæplega 60 prósent fleiri en árið áður og er það afar ánægjuleg þróun. Heimsóknum á skjalasafn fjölgaði einnig nokkuð en aðsókn að bókasafninu var lítið eitt minni en árið 2012.
 
Alls komu um 11 þúsund gestir í Safnahús á árinu 2013 og er það um 9 prósenta aukning frá árinu 2012.
 

Share: