Gamli miðbærinn Borgarnesi, Deiliskipulagsbreytingar

febrúar 13, 2007
Auglýsing: Í samræmi við 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. er hér með lýst eftir athugasemdum við breytingu á ofangreindu skipulagi.
Breytingar felast í því að íbúðarfjölda í einstökum húsum er breytt ásamt því sem bílastæðum við Skúlagötu er breytt. Sjá deiliskipulagsuppdrátt hér.
Deiliskipulag verður til sýnis í ráðhúsi Borgarbyggðar frá 21.02.2007 til 21.03.2007 frestur til athugasemda vegna deiliskipulags rennur út 4.04.2007.
Athugasemdir við breytingar á skipulaginu skulu vera skriflegar og berast til skrifstofu Borgarbyggðar Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tiltekin frest til athugasemda, telst samþykkur henni.
Borgarnesi 12.02.2007
 
Forstöðumaður framkvæmdasviðs Borgarbyggðar
 

Share: