Gætum varúðar á aðventunni

desember 8, 2006
Slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar, Bjarni Þorsteinsson, hvetur til sérstakarar aðgæslu á þessum vikum þegar mikið er um alls konar jólaskreytingar á heimilum og í fyrirtækjum. Hér á eftir fer listi um nokkur atriði sem fólk þarf að mati Bjarna sérstaklega að hafa í huga:

  1. Reykskynjarar – það er góð vinnuregla að skipta um rafhlöður í þeim í desember ár hvert.
  2. Handslökkvitæki – að þau séu til á öllum heimilum og yfirfarin reglulega.
  3. Raflagnir – varast skal að ofhlaða raflagnir með lélegum fjöltengjum og skreytingum.
  4. Fjöltengi – ávalt skal nota viðurkennd fjöltengi með slökkvara og gaumljósi.
  5. Eldvarnarteppi – slíkt á að vera í hverju eldhúsi.
  6. Útgönguleiðir – gera þarf flóttaáætlun á hverju heimili ef til hættuástands kynni að koma.
  7. Kertaljós – Varúðar skal gæta nálægt logandi ljósum, kertaljósum og skreytingum.
  8. Aðgæsla – gæta skal þess að hvergi sé logandi á kerti ef íbúðarhúsnæði er yfirgefið.
  9. Kerti í gluggum – logandi kerti skal aldrei hafa í gluggum.
  10. Raforkan – dreifa skal raforkunotkun við matseld um jól og áramót vegna álags á dreifikerfið.
  11. Flugeldar – Nauðsynlegt er að hafa ullar- eða skinnvettlinga á höndum og öryggisgleraugu þegar flugeldum er skotið á loft um áramót.
  12. Neyðarþjónusta – hringja skal í 112 ef voða ber að höndum.

 

Share: