Gæsluvöllur í Borgarnesi

júlí 16, 2007
Gæsluvöllurinn á Skallagrímsgötu 7 (róló) í Borgarnesi verður opinn frá og með 13. júlí til og með 10. ágúst 2007. Opið verður alla virka daga frá klukkan 13:00 – 17:00. Umsjónarkona á gæsluvellinum í sumar er Kristín Amelía Þuríðardóttir. Henni til aðstoðar verða nemendur úr Vinnuskóla Borgarbyggðar.
Verð er kr. 200,- fyrir hvert skipti, en einnig er hægt að kaupa afsláttarkort á kr. 2.000,- sem gildir í 12 skipti. Símanúmer á gæsluvellinum er 697-9521. Hér er hægt að nálgast reglur um gæsluvöllinn.
 
Ljósmynd: Þorgerður Gunnarsdóttir.

Share: