Gæludýraeftirlitsmaður Borgarbyggðar – laus staða

desember 5, 2007
Laust er til umsóknar starf gæludýraeftirlitsmanns Borgarbyggðar. Hlutverk hans er að sjá til þess að reglum sveitarfélagsins um hunda- og kattahald sé framfylgt.
Mikilvægt er að gæludýraeftirlitsmaðurinn hafi sjálfur yfir að ráða nægu húsnæði til að geyma fönguð dýr.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf um næstu áramót.
Umsóknarfrestur er til 21. desember n.k.
Nánari upplýsingar gefur Björg Gunnarsdóttir umhverfis- og kynningarfulltrúi í síma 433-7100 eða netfang bjorg@borgarbyggd.is
 

Share: