Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Í þeirri vegferð sem fram undan er ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði að framúrskarandi þjónustu og öflugu vinnuumhverfi.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Erum við að leita að þér?
Helstu verkefni og ábyrgð
- Framkvæmd starfsmannastefnu sveitarfélagsins.
- Stuðningur og ráðgjöf til stjórnenda í mannauðsmálum og undirbúningur reglna og leiðbeininga til að gæta jafnræðis, svo sem ráðningaferli, móttaka starfsmanna og starfslok.
- Uppsetning, útfærsla og innleiðing gæðakerfis og daglegur rekstur þess.
- Afmarka þá ferla sem eru nauðsynlegir fyrir gæðakerfi og forgangsraðar þeim. Stýrir vinnu við gerð ferla og gæðakerfis í samstarfi við hlutaðeigandi aðila hverju sinni.
- Vaktar, mælir og greinir ferla og hefur yfirumsjón með eftirliti með ferlum.
- Ákvarðar hvaða árangursmælingar skulu framkvæmdar.
- Framkvæmir innri úttektir, svo sem starfsmannakannanir og árangursmælingar og fleiri þætti til að framfylgja stefnum sveitarfélagsins.
- Vinnur að úrbótum og eftirfylgni.
- Vinnur að þjónustuþróun og innleiðingu notendamiðaðrar þjónustuhönnunar.
- Vinnur að innleiðingu teymisvinnu í sveitarfélaginu.
- Þátttaka í stefnumótunarvinnu og vinnuhópum á vegum sveitarfélagsins í samráði við sveitarstjóra.
Menntun og hæfniskröfur
- Krafist er háskólamenntunar sem nýtist í starfi.
- Framhaldsmenntun í verkefna-, gæða- eða mannauðsstjórnun eða sambærilegum greinum æskileg.
- Marktæk reynsla af gæða- og mannauðsmálum nauðsynleg.
- Reynsla af rekstri gæðastjórnunarkerfa, mótun verkferla, innleiðingu og umbótastarfi nauðsynleg.
- Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Þekking og/eða reynsla af úrvinnslu tölfræðilegra gagna.
- Reynsla af teymisvinnu, stefnumótun og breytingastjórnun er kostur.
- Sjálfstæði í störfum, faglegur metnaður, frumkvæði og góð skipulagshæfni.
- Rík þjónustulund
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Frekari upplýsingar um starfið
Launakjör eru samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Umsókn fylgi einnig kynningarbréf.
Umsóknir skal senda á netfangið atvinna@borgarbyggd.is.
Öllum umsóknum verður svarað.
Vinnutími: Dagvinna
Starfshlutfall: 100%
Starfssvið: Skrifstofa sveitarstjóra
Umsóknarfrestur er til og með: 28. nóvember n.k.
Nánari upplýsingar veitir Þórdís Sif Sigurðardóttir sveitarstjóri – sveitarstjori@borgarbyggd.is – 433-7100