Nk. fimmtudag, 27. Aprí,l verður opinn fundur með þjónustuþegum í fötlunarþjónustu, aðstandendum og öðrum áhugasömum um þjónustu við einstaklinga með fötlun í Borgarbyggð. Fundurinn verður haldinn í salnum á Borgabraut 65a.
Dagskrá fundar:
Kl. 14 – 15 Fræðslufundur um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Jafningjafræðsla og umræður.
Kl. 15 – 15:15 Kaffihlé
Kl. 15:15 – 16:15 árlegur fundur um þjónustu við einstaklinga með fötlun í Borgarbyggð. Farið yfir hvað gengur vel og hvað má betur fara.
Allir velkomnir
Búsetuþjónustan og velferðarnefnd