
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) standa fyrir fundi um ráðstöfun dýraleifa miðvikudaginn 21. febrúar n.k. Fundurinn verður á Teams og hefst kl. 09:00.
Frummælendur á fundinum verða:
- Stefán Gíslason ráðgjafi hjá Environice
 Dýraleifar: Skipting ábyrgðar, staða og horfur
- Hrefna B. Jónsdóttir framkvæmdastjóri Sorpurðunar Vesturlands
 Kynning á tilraunaverkefni um flutning dýraleifa í brennsluAllir velkomnir
 Til að fá fundarboð á Teams þarf að skrá sig á fundinn í síðasta lagi þriðjudaginn 20. febrúar n.k. á þetta skráningarform