Fundur hjá körfuknattleiksdeild Skallagríms fimmtudaginn 7. október nk.

október 5, 2021
Featured image for “Fundur hjá körfuknattleiksdeild Skallagríms fimmtudaginn 7. október nk.”

Stjórn körfuknattleiksdeildar Skallagríms hefur boðað til fundar fimmtudaginn 7. október kl. 20:00 í Grunnskólanum í Borgarnesi. Tilefni fundarins er sá að það vantar liðsauka í sjálfboðaliðastarf félagsins og fjáröflun blasir við til þess að halda lið Skallagríms í keppni.

Stjórnin telur mikilvægt að leita allra leiða til þess að koma í veg fyrir úrsögn úr keppni og boðar því til fundar með íbúum og stuðningsfólki sem vilja aðstoða.

Borgarbyggð hvetur alla sem hafa tök á, að mæta á fundinn og taka þátt í þessu mikilvæga starfi.

 


Share: