Fundist hefur hálsfesti með krossi

nóvember 9, 2007
Starfsmaður Borgarbyggðar gekk fram á hálsfesti með krossi við Tónlistarskóla Borgarfjarðar í gær. Hann tók hálsmenið með sér og er það nú í góðum höndum í ráðhúsi Borgarbyggðar.
Eigandi hálsmensins getur nálgast það á skrifstofu Borgarbyggðar við Borgarbraut 14 í Borgarnesi á opnunartíma skrifstofunnar milli 9:00 og 15:00.
 

Share: