Fuglasýning í Safnahúsi Borgarfjarðar

febrúar 24, 2010
mynd_GJ
Opnuð hefur verið sýning á uppstoppuðum fuglum í Safnahúsinu í Borgarnesi. Um er að ræða uppstillingu vegna flokkunarvinnu við Náttúrugripasafn Borgarfjarðar og verður sýningin opin fram að páskum alla virka daga frá kl. 13.00 – 16.00 eða á öðrum tímum samkvæmt samkomulagi. Á staðnum eru fræðibækur um fugla svo hægt er að spreyta sig á að greina tegundirnar. Við þetta má bæta að Safnahús er staðsett við ströndina þar sem fylgjast má með lífríki náttúrunnar á leirunum út um glugga hússins. Það er skemmtilegur viðauki við sýninguna á þessu merka fuglasafni.
Náttúrugripasafn Borgarfjarðar var stofnað sem deild úr Byggðasafni Borgarfjarðar 1972. Jón M. Guðmundsson hefur stoppað upp mikið af dýrum fyrir safnið og gripir hafa verið keyptir inn eftir föngum í gegn um árin. Þar er einnig að finna mikið safn Kristjáns Geirmundssonar hamskera. Gripirnir í safninu þykja einkar vandaðir og úrvalið mikið.
 

Share: