Frítt í Safnahúsið í dag, 10. febrúar

febrúar 10, 2021
Featured image for “Frítt í Safnahúsið í dag, 10. febrúar”
Borgarbyggð tekur þátt í átaki Geðhjálpar og býður frítt í Safnahúsið í dag, 10. febrúar. Um er að ræða hluti af samvinnuverkefninu “Fáðu þér G-Vítamín – Gleymdu þér á safni” sem samtökin standa fyrir. Markmið verkefnisins að stappa stálinu í fólk á erfiðum tímum og fylla á G-vítamín byrgðirnar. 

 

Fréttatilkynning frá Geðhjálp má sjá hér að neðan:

 

Fáðu þér G-Vítamín!

Frítt inn á valin söfn í samstarfi við sveitarfélög um land allt miðvikudaginn 10.febrúar.

Geðhjálp stendur fyrir átakinu G-Vítamín á þorra þar sem verndandi þáttum geðheilsu er gefinn gaumur.

Alla daga þorrans er bent á eina aðgerð á dag sem nota má sem G-vítamín.

Miðvikudaginn 10.febrúar er G-vítamín dagsins að „Gleyma sér“. Því er tilvalið að fara á safn sem er góð leið til að gleyma sér og njóta menningar og listar í leiðinni.

 

Endilega nýtið tækifærið, ef ekki á þeim degi, þá þegar hentar. Það er verðmætt að leyfa sér að gleyma sér. Frekari upplýsingar um söfn sem taka þátt á gvitamin.is. Það þarf ekki að skrá sig til að fá aðgang að söfnunum.

 

Viltu meira G-Vítamín? Á gvitamin.is er hægt að skrá sig og fá heilræði dagsins send í tölvupósti allan þorra ásamt möguleika á fjöldanum öllum af geðbætandi vinningum sem dregnir eru út daglega.

 


Share: