Frístundastyrkur fyrir börn og ungmenni

janúar 2, 2018
Featured image for “Frístundastyrkur fyrir börn og ungmenni”

Borgarbyggð minnir á styrki til frístundaiðkunar barna og ungmenna á aldrinum 6-18 ára. Framlagið er kr. 20.000 á ári og er markmið þess að hvetja börn og ungmenni til að taka þátt í frístundastarfi í Borgarbyggð.

Hægt er að nýta frístundastyrk í:

  • skipulagt frístundastarf í Borgarbyggð sem stundað er undir leiðsögn þjálfara eða leiðbeinanda samfellt í amk. 10 vikur. Þetta á t.d. við um allt íþróttastarf sem stundað er á vegum viðurkenndra íþróttafélaga, dans í dansskólum, skátastarf og annað reglubundið frístundastarf,
  • íþrótta- og tómstundanámskeið barna í 1. og 2. bekk sem skráð eru í íþrótta- og tómstundaskólann,
  • árskort/sundkort fyrir ungmenni eldri en 16 ára,
  • Nám í tónlistarskóla sem er samfellt í 10 vikur.

Úthlutun frístundastyrksins fer fram á íbúagátt Borgarbyggðar og í gegnum skráningarkerfið Nóra vegna starfs hjá félögum UMSB.  Bæði er hægt að nýta styrkinn beint hjá félögum innan Borgarbyggðar sem og í öðrum sveitarfélögum.  Þegar frístundastyrkurinn er nýttur í gegnum skráningarkerfi Nóra þarf að haka í kassann „Nota frístundastyrk Borgarbyggðar“ og þá lækkar upphæð æfingagjalda um þá upphæð sem nemur inneign frístundastyrks fyrir barnið.

Í öllum tilfellum byrjar þú á að skrá þig inn á íbúagátt Borgarbyggðar. Þú getur notað rafræn skilríki eða Íslykil. Ef þú átt ekki rafræn skilríki eða Íslykil skráir þú kennitölu þína í reitinn Nýskráning og færð Íslykil sendan í heimabankann þinn.

Sjá leiðbeiningar:Frístundastyrkur-leiðbeiningar

Greitt er tvisvar á ári, kr. 10.000 eru greiddar í janúar fyrir vorönn og kr. 10.000 í ágúst fyrir haustönn. Ef styrkurinn hefur ekki verið nýttur á vorönn nýtast kr. 20.000 á haustönninni.

Nánari upplýsingar veitir innheimtufulltrúi Borgarbyggðar á: kristinlilja@borgarbyggd.is


Share: