Frístundastyrkur fyrir börn og ungmenni í Borgarbyggð

ágúst 26, 2020
Featured image for “Frístundastyrkur fyrir börn og ungmenni í Borgarbyggð”

Borgarbyggð styrkir frístundaiðkun barna og ungmenna á aldrinum 6-18 ára með framlagi að upphæð kr. 40.000 á ári.

Markmið framlagsins er að hvetja börn og ungmenni til að taka þátt í frístundastarfi.

Hægt er að nýta frístundastyrk í:

  • skipulagt frístundastarf  sem stundað er undir leiðsögn þjálfara eða leiðbeinanda samfellt í a.m.k. 10 vikur. Þetta á t.d. við um allt íþróttastarf sem stundað er á vegum viðurkenndra íþróttafélaga, dans í dansskólum, skátastarf og annað reglubundið frístundastarf.
  • íþrótta- og tómstundanámskeið barna í 1. og 2. bekk sem skráð eru í íþrótta- og tómstundaskólann.
  • þreksal, árskort/sundkort fyrir ungmenni á aldrinum 13 – 16 ára undir eftirliti íþróttafræðings samfellt í amk. 10 vikur.
  • þreksal, árskort/sundkort fyrir ungmenni eldri en 16 ára.
  • nám í tónlistarskóla sem er samfellt í 10 vikur.

Hægt er að nýta frístundastyrkinn hjá félögum innan Borgarbyggðar sem og í öðrum sveitarfélögum. Umsóknir eru afgreiddar rafrænt í gegnum í þjónustugátt Borgarbyggðar á heimasíðu Borgarbyggðar og í skráningarkerfinu Nóra vegna starfs hjá félögum UMSB á heimasíðu UMSB.

Forráðamenn skrá sig inn á íbúagátt Borgarbyggðar, annað hvort með rafrænum skilríkum eða Íslykli.

  • Undir „Frístundastarf“ koma fram upplýsingar um námskeið.
  • Hakað er við „Nota Frístundastyrk Borgarbyggðar“ og þá lækkar upphæð gjalda um þá upphæð sem nemur inneign frístundastyrks.

Frístundastyrkurinn er kr. 40.000 á ári sem möguleiki er að nýta hvenær sem er á árinu. Inneign fellur niður um áramót.

Upplýsingar um íþrótta- og tómstundanámskeið sem eru í boði 2020 – 2021 má finna hér.

 


Share: