Frístundaráðgjafar/leiðbeinendur við félagsmiðstöðvar Borgarbyggðar

desember 11, 2014
Borgarbyggð aulýsir laus til umsóknar hlutastörf í félagsmiðstöðvum fyrir unglinga í Borgarbyggð.
Félagsmiðstöðvarnar eru starfræktar í Borgarnesi og á Bifröst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir unglinga
Leiðbeina unglingum í leik og starfi
Umsjón og undirbúningur klúbbastarfs
Samráð og samvinna við unglinga og starfsfólk skóla
Samskipti og samstarf við foreldra
 
Hæfniskröfur

  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Áhugi á að vinna með unglingum
  • Frumkvæði og sjálfstæði
  • Færni í samskiptum

Frekari upplýsingar um störfin
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í byrjun janúar 2015.
Í boði eruu þrjú hlutastörf, 30% – 50% hvert.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Kjalar og Launanefndar sveitarfélaga.
 
Umsóknarfrestur er til og með 19.12.2014
 
Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störf hjá sveitarfélaginu.
 
Í samræmi við æskulýðslög nr. 70/2007 þurfa þeir sem ráðnir eru til starfsins að skila sakavottorði.
 
Nánari upplýsingar um störfin veitir Ásthildur Magnúsdóttir fræðslustjóri í síma 433-7100 eða á netfanginu asthildur@borgarbyggd.is
 

Share: