Frá Vinnuskóla Borgarbyggðar

júní 1, 2011
Vinnuskólinn er fyrir unglinga í 8. – 10. bekk og verður settur mánudaginn 6. júní n.k. kl. 9.00 á eftirfarandi stöðum:
Í Borgarnesi kl. 9.00 í Óðali.
Á Hvanneyri kl. 9.00 við gömlu slökkvistöðina
Á Bifröst kl. 9.00 við kjallarann á Hamragörðum Þriðjudaginn 7. júní verður vinnuskólinn settur í Reykholti, við áhaldageymsluna við Snorrastofu, kl. 9.00.
Klæðum okkur í samræmi við veður og mætum jákvæð með góða skapið að sjálfsögðu.
Vinnutímabil skólans verður 4 vikur eða frá 6. júní til og með 5. júlí 2011.
Daglegur vinnutími er frá kl. 8:30 – 16:00 alla virka daga nema föstudaga en þá er unnið til kl. 12:00.
Matarhlé er 1 klst dag hvern, auk tvisvar x 10 mínútna pásu þar sem nemendur geta gætt sér á hollu nesti að heiman á vinnustað.
Verkstjóri vinnuskólans verður eins og áður Sigurþór Kristjánsson og mun hann annast stjórnun daglegrar starfsemi skólans.
 

Share: