Franskt vor í Borgarnesi

apríl 20, 2007
Dagana 20.-23. apríl verður dagskrá á vegum Safnahúss Borgarfjarðar og Landnámsseturs Íslands í tengslum við menningarhátíðina Franskt vor á Íslandi.

 

Sýningin um Pourquoi Pas? – strandið verður opin og Turak brúðuleikhúshópurinn kemur fram.

Sýningin Pourquoi Pas? – strandið sem er í Tjernihúsi í Englendingavík verður opin í dag, föstudag kl. 18.00-21.00 og á laugardag og sunnudag frá kl. 14.00-17.00.

Á laugardag kl. 14.00 er sérstök dagskrá með upplestri, tónlistarflutningi og kaffiveitingum.

 

Mánudagskvöldið 23. apríl kl. 20.00 verður franski brúðuleikhúshópurinn Turak með sýningu í Landnámssetrinu. Sýningin er án orða og jafnt fyrir börn og fullorðna. Fólk er hvatt til að missa ekki af þessari sérstæðu sýningu.

 

Ljósmynd með frétt: Sýningin um Pourquoi Pas? opnuð í september 2006. Ljósmynd: Guðrún Jónsdóttir

 

Share: