Framkvæmdastyrkir til Íþrótta- og tómstundafélaga í Borgarbyggð

apríl 20, 2022
Featured image for “Framkvæmdastyrkir til Íþrótta- og tómstundafélaga í Borgarbyggð”

Borgarbyggð auglýsir til umsóknar framkvæmdastyrki. Styrkjunum er ætlað styðja við einstakar framkvæmdir hjá íþrótta- og tómstundafélögum innan Borgarbyggðar til uppbyggingar eða viðhalds á fasteignum eða athafnasvæði félagsins sem Borgarbyggð kemur ekki að rekstri að öðru leyti og er í eigu félaga eða félagasamtaka innan Borgarbyggðar.

Skilyrði fyrir styrkveitingu er að um íþrótta-, ungmenna- eða tómstundafélag innan Borgarbyggðar sé að ræða. Umsóknaraðili þarf að reka sértæka aðstöðu eða húsnæði innan sveitarfélagsins sem sveitarfélagið Borgarbyggð hvorki á eða rekur og leggur ekki til framkvæmdarfé á fjárhagsáætlun.

Umsókninni þarf að fylgja framkvæmdar- og kostnaðaráætlun og ársreikningur félagsins. Einnig þarf að koma skýrt fram hvert er markmið framkvæmdarinnar. Til þess að hægt sé að afgreiða umsóknirnar er mikilvægt að þessari upplýsingar fylgi með.

Hámarksstyrkur er kr. 2.000.000 og getur hvert verkefni að hámarki verið stutt 3 ár í senn. Sjálfboðavinna er metin að fullu sem vinna.

Styrkurinn greiðist í tvennu lagi, 50% við tilkynningu um styrkveitingu og 50% þegar lokaskýrsla hefur borist byggðarráði. Verði verkið ekki framkvæmt skal styrkurinn endurgreiðast að fullu. Vinnist verkið ekki eins og fram kom í upphaflegri styrkbeiðni verður að koma skýrt fram í lokaskýrslu hversvegna svo er ekki og rökstuðningur að fylgja.

Við úthlutun á styrk skal eftirfarandi reglum fylgt til að fá úr því skorið hvort framkvæmdin teljist styrkhæf.

  • Að um sé að ræða skilgreint íþrótta og/eða tómstundafélag sem standi fyrir framkvæmdinni.
  • Að félagið eigi lögheimili í Borgarbyggð og sé opið öllum.
  • Að framkvæmdin bæti aðstöðu og/eða auki möguleika á að fjölga iðkendum í viðkomandi félagi.
  • Að félagið hafi fjárhagslega eða félagslegan styrk til að standa að framkvæmdum og rekstri þess sem á að framkvæma enda komi það fram í áætlun sem fylgi með umsókn.
  • Að starfsemin falli vel að markmiðum sveitarfélagsins um íþróttir og tómstundir sem birtast í stefnum þess. Þar má nefna bæði Íþrótta og tómstundastefnu og Heilsueflandi samfélag.

Sótt er um á íbúagátt á heimasíðu Borgarbyggðar fyrir 5. maí 2021.

Nánari upplýsingar veitir Hlöðver I. Gunnarsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs á hlodver.gunnarsson@borgarbyggd.is.


Share: