Framhaldsprófstónleikar

maí 12, 2017
Featured image for “Framhaldsprófstónleikar”

Næstkomandi sunnudag, 14. maí kl. 17:00 mun Olgeir Helgi Ragnarsson tenór halda framhaldsprófstónleika í Borgarneskirkju. Jónína Erna Arnardóttir leikur með honum á píanó. Olgeir Helgi er tuttugasti og annar nemandinn sem lýkur framhaldsprófi frá Tónlistarskóla Borgarfjarðar og eru tónleikarnir hluti framhaldsprófsins.

Á dagskránni verða  meðal annars þýsk ljóð, íslensk sönglög og ítalskar aríur.

Allir velkomnir og aðgangur ókeypis


Share: