Framboðsfundir í Borgarbyggð

maí 18, 2010
Framboðsfundir í Borgarbyggð fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 29. maí n.k. verða haldnir á eftirtöldum stöðum:
Mánudaginn 17. maí kl. 20.30 í félagsheimilinu Lindartungu
Þriðjudaginn 18. maí kl. 20.30 í félagsheimilinu Logalandi
Miðvikudaginn 19. maí kl. 20.30 í Menntaskóla Borgarfjarðar
Á fundunum verða öll framboð með framsögu og að þeim loknum verða pallborðsumræður með fulltrúum frá hverju framboði. Einnig gefst fundarmönnum kostur á bera upp fyrirspurnir úr sal.
Kjósendur eru hvattir til að mæta á fundina og kynna sér stefnumál framboðanna.
Frambjóðendur
 
 

Share: