Lausar kennarastöður
Grunnskólinn í Borgarnesi auglýsir lausar til umsóknar kennarastöður við skólann frá upphafi næsta skólaárs. Leitað er að vel menntuðum kennurum sem vilja taka þátt í þróun skólastarfs með öðrum starfsmönnum skólans. Lögð er áhersla á fjölbreytta og sveigjanlega kennsluhætti, teymisvinnu kennara og vellíðan nemenda. 
Meðal kennslugreina er stuðnings- og  sérkennsla, almenn bekkjarkennsla, heimilisfræði, tónmennt og erlend tungumál. 
Í skólanum eru um 330 nemendur og mun þeim fjölga á næstu misserum enda er Borgarbyggð vaxandi byggðarlag þar sem gott er að búa.  
Á heimasíðu skólans (www.grunnborg.is)  er að finna ýmsar upplýsingar um skólann en auk þess veita Kristján Gíslason (kristgis@grunnborg.is) skólastjóri og Hilmar Már Arason (hilmara@grunnborg.is) aðstoðarskólastjóri fúslega allar upplýsingar í síma 437-1229. 
Umsóknarfrestur er til 27. febrúar.