Starfsfólk óskast til starfa í búsetuþjónustu fatlaðra í Borgarnesi.
Starfið felst í að aðstoða fólk með fötlun, í daglegu lífi, inni á heimilum þess og úti í samfélaginu.
Starfið er vaktavinna. Unnið er á morgun-, kvöld- dag- og helgarvöktum. Umsækjandi þarf að vera eldri en 20 ára og með ökuréttindi. Tóbakslaus vinnustaður. Laun samkvæmt kjarasamningum.
Nánari upplýsingar veitir Hulda Birgisdóttir í síma 893-9280, milli kl. 8.00-16.00, virka daga.