Forstöðumaður Öldunnar, Borgarnesi

september 25, 2018
Featured image for “Forstöðumaður Öldunnar, Borgarnesi”

Borgarbyggð auglýsir lausa til umsóknar 100% stöðu forstöðumanns Öldunnar, verndaðs vinnustaðar í Borgarnesi. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á málefnum fatlaðra.

Aldan starfar samkvæmt lögum um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992, reglugerðum þeim tengdum og sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra. Þar er komið til móts við þörf fatlaðs fólks á dagþjónustu, vinnu og hæfingu. Aldan rekur dósamóttöku, verslun, saumastofu, kertagerð ofl. og sér um pökkun, límmerkingar á alls kyns varningi fyrir stofnanir og fyrirtæki ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.

Upplýsingar veitir Inga Vildís Bjarnadóttir félagsmálastjóri, sími 433-7100 á vildis@borgarbyggd.is

Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist Borgarbyggð á borgarbyggd@borgarbyggd.is

Umsóknarfrestur er til 1. október 2018.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Menntunar- og hæfniskröfur:

Þroskaþjálfa- eða iðjuþjálfamenntun

Reynsla af starfi með fötluðum

Góðir skipulagshæfileikar

Hæfni í mannlegum samskiptum

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:

Sér um stjórnun, áætlanagerð og rekstur Öldunnar

Ber ábyrgð á innra starfi, starfsmannamálum og samskiptum við aðstandendur og samstarfsaðila

Ber ábyrgð á starfs-, þjónustu- og rekstraráætlunum

Veitir leiðsögn til starfsmanna og leiðbeinenda

Ber ábyrgð á samvinnu við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast Öldunni


Share: