Borgarbyggð auglýsir lausa til umsóknar 100% stöðu forstöðumanns Öldunnar, verndaðs vinnustaðar í Borgarnesi. Um tímabundna ráðningu er að ræða með möguleikum á framtíðarráðningu. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á málefnum fatlaðra.
Aldan starfar samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018, reglugerðum þeim tengdum og sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra. Þar er komið til móts við þörf fatlaðs fólks á dagþjónustu, vinnu og hæfingu. Aldan rekur dósamóttöku, verslun, saumastofu, kertagerð ofl. og sér um pökkun, límmerkingar á alls kyns varningi fyrir stofnanir og fyrirtæki ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.
Menntunar og hæfniskröfur:
- Þroskaþjálfa, iðjuþjálfamenntun eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af starfi með fötluðum
- Góðir skipulagshæfileikar
- Hæfni í mannlegum samskiptum
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
- Sér um stjórnun, áætlanagerð og rekstur Öldunnar
- Ber ábyrgð á innra starfi, starfsmannamálum og samskiptum við aðstandendur og samstarfsaðila
- Ber ábyrgð á starfs-, þjónustu- og rekstraráætlunum
- Veitir leiðsögn til starfsmanna og leiðbeinenda
- Ber ábyrgð á samvinnu við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast Öldunni
Upplýsingar veitir Inga Vildís Bjarnadóttir félagsmálastjóri, sími 433-7100 á vildis@borgarbyggd.is
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist Borgarbyggð á borgarbyggd@borgarbyggd.is
Umsóknarfrestur er til 1. janúar 2020.