Flokkstjórastörf við vinnuskóla Borgarbyggðar

apríl 15, 2014
Vinnuskóli Borgarbyggðar óskar að ráða flokksstjóra fyrir sumarið 2014
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri, hafa gott lag á börnum og unglingum og vera þeim góð fyrirmynd í starfi. Í starfinu felst m.a. að leiðbeina og kenna öguð og rétt vinnubrögð við fjölbreytt störf. Vinnutímabilið er 8 vikur eða frá 2. júní til og með 25. júlí n.k. Laun eru samkvæmt kjarasamningum launanefndar sveitarfélaga.
Vinnustaðurinn er tóbakslaus.
Umsóknareyðublöð fást í Ráðhúsi Borgarbyggðar Borgarbraut 14, Borgarnesi og á skrifstofu sveitarfélagsins að Litla-Hvammi í Reykholti en einnig má nálgast umsóknareyðublöðin á heimasíðu sveitarfélagsins www.borgarbyggd.is
Umsóknum má skila í Ráðhúsi Borgarbyggðar og í Litla-Hvammi.
 
Nánari upplýsingar gefa Sigurþór Kristjánsson verkstjóri vinnuskólans í síma 892 7970 eða á netfangið sissi@borgarbyggd.is og Jökull Helgason forstöðumaður Umhverfis- og skipulagssviðs í síma 433 7100 eða á netfangið jokull@borgarbyggd.is
Umsóknarfrestur er til föstudagsins 2. maí n.k.
Jökull Helgason
Forstöðumaður umhverfis- og skipulagssviðs
 
 

Share: