Fjölskyldusirkushelgi á Kleppjárnsreykjum

september 15, 2022
Featured image for “Fjölskyldusirkushelgi á Kleppjárnsreykjum”

Húlladúllan og Borgarbyggð bjóða upp á bráðskemmtilega og heilsueflandi fjölskyldusirkushelgi helgina 24. – 25. september 2022. Þátttakendur kynnast hinum heillandi heimi sirkuslistanna og spreyta sig á hinum ýmsu sirkuslistum og og sirkusáhöldum, hópefli og alls konar skemmtilegum leikjum.

Kennt er í Íþróttahúsinu Kleppjárnsreykjum frá klukkan 10:00 – 16:00, með klukkutíma hádegishléi á milli klukkan 12:30 og 13:30, hvorn dag. Þátttökugjald er 500 kr. Smellið hér til þess að skrá þátttakendur til leiks: https://forms.gle/TQATEG5rBDoD5jWbA

Þátttakendum er frjálst að stíga inn og út úr dagskránni eftir því hvað orka og úthald hvers og eins leyfir. Dagskráin er sérstaklega sniðin að því að fjölskyldan og samfélagið geti öll tekið þátt saman, bæði lítil og stór, yngri og eldri. Ætlast er til þess að börn yngri en 10 ára séu í fylgd með eldri fjölskyldumeðlimi eða vinum.

Í boði verða fjölbreyttar sirkuslistir, t.d. húlla, loftfimleikar í silki, blómaprik, sirkusfimleikar og píramídar, djöggl, jafnvægisfjaðrir, kínverskir snúningsdiskar, kasthringir, veltibretti og fimleikaborðar.

Húlladúllan er Unnur María Máney, sjálfstætt starfandi sirkuslistakona, búsett á Ólafsfirði. Hún er lærður sirkuskennari og hefur kennt og sýnt með Sirkus Íslands og breska sirkusnum Let’s Circus auk þess að koma fram á ýmsum viðburðum á alþjóðlegri grundu.


Share: