Fjallhús Borgarbyggðar

júní 22, 2011
Langavatn
Nokkur fjallhús eru í eigu Borgarbyggðar. Flest eru þau notuð sem leitarmannaskálar á haustin en hægt er að fá gistingu fyrir einstaklinga og hópa á öðrum tíma. Húsin eru mismikið notuð enda aðgengi vegna staðsetningar misjafnt. Skálarnir á Arnarvatnsheiði og við Hítarvatn og Langavatn hafa t.d. notið mikilla vinsælda hjá göngu- og hestahópum. Hægt er að panta gistingu og fá upplýsingar um húsin hjá eftirtöldum:
 
Torfhvalastaðir og Lambafell við Langavatn – Ráðhús Borgarbyggðar s. 433 7100
Úlfsvatnsskáli og Álftakróksskáli á Arnarvatnsheiði – Veiðifélg Arnarvatnsheiðar s. 892 5052/862 7957 eða á heimasíðu http://arnarvatnsheidi.is/
Gilsbakkasel – Ólafur Guðmundsson s. 435 1358
Hítarvatn – Finnbogi Leifsson s. 437 1715
 

Share: