Fengu styrk til hljóðfærakaupa

september 20, 2019
Featured image for “Fengu styrk til hljóðfærakaupa”

Tónlistarskóli Borgarfjarðar fékk nú í vikunni veglegan styrk frá Stéttarfélagi Vesturlands.

Styrkurinn hljóðar upp á kr. 650.000 og er ætlaður til hljóðfærakaupa. Theodóra Þorsteinsdóttir skólastjóri og Birna Þorsteinsdóttir deildarstjóri tóku við gjafabréfi fyrir hönd skólans. Theodóra þakkaði stéttarfélaginu fyrir og sagði við afhendinguna að þetta myndi koma sér mjög vel, skólinn myndi m.a. kaupa ukulele fyrir forskóladeildina, rafmagnspíanó og gítara. 

 Mynd: Birna og Theodóra ásamt Signýju Jóhannesdóttur formanni Stéttarfélags Vesturlands


Share: