Félagsþjónustan auglýsir eftir liðveitendum

október 1, 2020
Featured image for “Félagsþjónustan auglýsir eftir liðveitendum”

Félagsþjónustan í Borgarbyggð auglýsir eftir einstaklingum til að starfa sem liðveitendur. Leitað er að einstaklingum sem náð hafa 18 ára aldri, óháð kyni.

Félagsleg liðveisla er veitt fötluðum börnum frá 6 ára aldri, sem og fullorðnu fötluðu fólki.  Markmiðið er að rjúfa félagslega einangrun og styrkja einstaklinga til þátttöku í menningar- og félagslífi.

Um er að ræða hlutastarf seinnipart dags og er því tilvalið sem aukastarf með námi eða öðru starfi.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi. 

Nánari upplýsingar veitir Hrönn Ásgeirsdóttir félagsráðgjafi í síma 433-7100 eða á netfangið hronn.asgeirsdottir@borgarbyggd.is


Share: