Félagsþjónustan auglýsir eftir liðveitendum

september 23, 2019
Featured image for “Félagsþjónustan auglýsir eftir liðveitendum”

Félagsþjónustan í Borgarbyggð auglýsir eftir einstaklingum til að starfa sem liðveitendur. Við leitum að einstaklingum sem náð hafa 18 ára aldri, óháð kyni.

 Um er að ræða hlutastarf seinnipart dags og er því tilvalið sem aukastarf með námi eða öðru starfi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi. Félagsleg liðveisla er veitt fötluðum börnum frá 6 ára aldri, sem og fullorðnu fötluðu fólki. Félagsleg liðveisla hefur það markmið að rjúfa félagslega einangrun og styrkja fólk til þátttöku í menningar- og félagslífi.

Nánari upplýsingar veitir Hrönn Ásgeirsdóttir félagsráðgjafi í síma 433-7100 eða á hronn.asgeirsdottir@borgarbyggd.is


Share: