Félagsráðgjafi óskast til starfa hjá félagsþjónustu Borgarbyggðar

október 3, 2019
Featured image for “Félagsráðgjafi óskast til starfa hjá félagsþjónustu Borgarbyggðar”

Félagsþjónusta Borgarbyggðar óskar eftir félagsráðgjafa til starfa í eitt ár vegna afleysinga. Um er að ræða 100% starf.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast meðferð mála einstaklinga og fjölskyldna innan félagsþjónustu, þ.m.t. félagslega ráðgjöf og fjárhagsaðstoð.
  • Annast greiningu og meðferð barnaverndarmála.
  • Þjónusta og ráðgjöf fyrir fólk með fötlun og þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu s.s. með skólum, leikskólum og öðrum þjónustustofnunum vegna málefna einstaklinga eða fjölskyldna.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Starfsréttindi í félagsráðgjöf.
  • Þekking og reynsla á sviði barnaverndar og meðferð fjölskyldumála æskileg.
  • Þekking og reynsla af vinnu með fólki með fötlun æskileg.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sveigjanleiki í starfi.
  • Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Áhugi á þverfaglegri samvinnu.

Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðilum berist á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is fyrir 20. október 2019.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf í janúar 2020.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félagsráðgjafafélag Íslands. Við hvetjum áhugasama til að sækja um óháð kyni og uppruna. Frekari upplýsingar um starfið veitir Inga Vildís Bjarnadóttir, félagsmálastjóri í síma 433-7100, vildis@borgarbyggd.is

 

 


Share: