Farsældardagur á Vesturlandi

maí 21, 2024
Featured image for “Farsældardagur á Vesturlandi”

Þann 16. maí sl. var haldinn Farsældardagur á Vesturlandi þar sem lykilaðilar frá öllum helstu þjónustustofnunum á Vesturlandi er koma að samþættri þjónustu í þágu farsældar barna hittust. Alls mættu um 120 einstaklingar og fór viðburðurinn fram í Hjálmakletti. Ásmundur Einar Daðason barna- og menntamálaráðherra mætti og flutti ávarp til hópsins og hvatti fólk til dáða. Á farsældardeginum var mikil áhersla lögð á þverfaglegt samtal og verkefnavinnu sem mun m.a. skila sér í áframhaldandi innleiðingu. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi stóð að deginum og kom KPMG að undirbúningi ásamt nokkrum stjórnendum í velferðarþjónustu í Borgarbyggð og á Akranesi. Hvert sveitarfélag fyrir sig sagði frá fyrirmyndar farsældarverkefni sem það hefur komið að.  Afar fróðlegt var að heyra hvernig önnur sveitarfélög hafa komið að innleiðingu á farsæld og hvernig þeim hefur tekist að tengja saman þjónustuveitendur í þeim tilgangi að veita bæði börnum og fjölskyldum þeirra samþætta og góða þjónustu. Á þessari mynd má sjá Margréti Gísladóttur, Elísabetu Jónsdóttur og Sigríði Dóru Sigurgeirsdóttur flytja fyrirmyndarverkefni farsældar í Borgarbyggð.


Share: