Eyrarrósin 2013

nóvember 26, 2012
Eyrarrósin, viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar, verður veitt í níunda sinn í febrúar árið 2013. Það eru Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík sem staðið hafa saman að verðlaununum allt frá upphafi árið 2005.
Markmið Eyrarrósarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar, á sviði menningar og lista. Umsækjendur um Eyrarrósina geta meðal annars verið stofnun, tímabundið verkefni, safn eða menningarhátíð.
Dorrit Moussaieff forsetafrú, verndari Eyrarrósarinnar, afhendir verðlaunin. Umsóknarfrestur um Eyrarrósina 2013 er til miðnættis þann 7. janúar 2013 og skulu umsóknir sendar rafrænt á eyrarros@artfest.is. Allar nánari upplýsingar eru á vef Listahátíðar í Reykjavík, www.listahatid.is.
Valnefnd tilnefnir þrjú verkefni og hlýtur eitt þeirra Eyrarrósina. Verðlaunaféð hefur verið hækkað og hlýtur handhafi Eyrarrósarinnar 1.650.000 krónur og flugferðir frá Flugfélagi Íslands. Aðrir tilnefndir hljóta 300.000 krónur auk flugferða.
 
Eyrarrósin 2012 kom í hlut Safnasafnsins á Svalbarðsströnd. Önnur menningarverkefni sem hlotið hafa Eyrarrós í hnappagatið eru Sumartónleikar í Skálholtskirkju, tónlistarhátíðin Bræðslan, Landnámssetrið í Borgarnesi, rokkhátíðin Aldrei fór ég suður, Strandagaldur á Hólmavík, LungA, listahátíð ungs fólks á Austurlandi og Þjóðlagahátíðin á Siglufirði

Share: