Ert þú flokkstjórinn sem við leitum að?

febrúar 19, 2020
Featured image for “Ert þú flokkstjórinn sem við leitum að?”

Flokkstjórar Vinnuskólans

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með hópum í almennum garðyrkjustörfum, gróðursetningu og hirðingu á opnum svæðum
  • Leiðbeina unglingum í leik og starfi

Vinnuskólinn verður með starfsstöðvar á fjórum stöðum í sveitarfélaginu:

  • Á Hvanneyri   
  • Á Bifröst
  • Í Reykholti
  • Í Borgarnesi

Umsækjendur um störf flokkstjóra þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Hafa náð 20 ára aldri
  • Áhugi á að vinna með unglingum og börnum
  • Frumkvæði, gleði og sjálfstæði
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Reynsla sem nýtist í starfi er kostur
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Borgarbyggðar.

Ráðningartímabilið er frá 2. júní – 21. ágúst eða eftir nánara samkomulagi.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfshlutfall er 100%.

Umsókn með helstu upplýsingum um umsækjanda, menntun og fyrri störf ásamt ósk um starf og starfsstöð berist með tölvupósti á Sigríði Dóru Sigurgeirsdóttir tómstundafulltrúa á siggadora@umsb.is sem veitir nánari upplýsingar um störfin.

Umsóknarfrestur er til og með 23.mars 2020


Share: