Endurnýjun glugga í Lindartungu

janúar 19, 2007
Frá framkvæmdasviði:
Um þessar mundir er verið að skipta um glugga í félagsheimilinu Lindartungu í Kolbeinsstaðahreppi.
Í verkinu felst að skipt verður um 22 glugga í húsinu auk þess sem skipt verður um sólbekki að innanverðu og áfellur að utanverðu.
Það er Hafsteinn H. Jónsson húsasmiður sem sér um verkframkvæmdina skv. tilboði en áætlað er að verkinu ljúki í febrúar n.k.
Jökull Helgason
Verkefnisstjóri framkvæmdasviðs
 
 

Share: