Endurbætur og viðhald 2018

september 20, 2018
Featured image for “Endurbætur og viðhald 2018”

Mikið hefur verið framkvæmt á sviði endurnýjunar og viðhalds fasteigna Borgarbyggða það sem af er ári. Myndir sem sýna þessar framkvæmdir koma á fb síðu Borgarbyggðar.

Grunnskólinn í Borgarnesi:

Miklar framkvæmdir standa nú yfir í eldri hluta skólans ásamt því að byggður verður nýr matsalur.  Í þeim hluta skólans sem fellur ekki undir þá framkvæmd var eftirfarandi gert.

  • Gólfdúkur í tveimur stofum endurnýjaður
  • Málað að innan að hluta
  • Málað að utan að hluta.
  • Endurglerjun
  • Gunnlaugsgata 21 rifin í tengslum við lóðahönnun

GBF Varmalandi:

  • Miðstig skólans tekið og lagfært þ.e. allar innréttingar, málning og rafmagn endurnýjað ásamt því að kerfisloft var sett til að bæta hljóðvist
  • Öryggismöl við leiktæki endurnýjuð skv. skýrslu BSI

GBF. Kleppjárnsreykjum:

  • Haldið áfram að endurglerja skólann og þeir gluggar málaðir

GBF. Hvanneyri:

  • Klárað að endurnýja gólfdúka ásamt því að endurnýja hluta af innréttingum
  • Öryggismöl við leiktæki endurnýjuð skv. skýrslu BSI

Tónlistarskóli Borgarfjarðar:

  • Unnið að lagfæringu á þaki skólans

Leikskólar:

Andabær: 

  • Eldhúsgólf lagfært
  • Málað að innan að hluta
  • Öryggismöl við leiktæki endurnýjuð skv. skýrslu BSI og drenlögn lóðar lagfærð

Hnoðraból:

  • Brýnasta viðhaldi sinnt þar til skólinn flytur að GBF. Kleppjárnsreykjum

Hraunborg

  • Skólinn málaður að innan að hluta ásamt því að hitakerfi skólans yfirfarið
  • Öryggismöl við leiktæki endurnýjuð skv. skýrslu BSI
  • Lóð tekin og betrumbætt

Ugluklettur:

  • Sett kerfisloft í miðrými skólans til að bæta hljóðvist
  • Öryggismöl við leiktæki endurnýjuð skv. skýrslu BSI
  • Sandkassi lagfærður

Klettaborg:

  • Skiptiaðstaða yngstu barna endurnýjuð
  • Öryggismöl við leiktæki endurnýjuð og gúmmímottur settar að hluta skv. skýrslu BSI
  • Lóð tekin og betrumbætt

Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi:

  • Gólfefni endurnýjuð á vaðlaug ásamt því að öryggishandrið sett meðfram að hluta
  • Kalt ker tekið í notkun
  • Sánatunna tekin í notkun.
  • Verið að vinna að jöfnunartank fyrir innilaug
  • Tvær rafmagnsrennihurðir teknar í notkun önnur í anddyri og hin við innilaug
  • Forhitari fyrir útilaug endurnýjaður

Íþróttamiðstöðin Kleppjárnsreykjum

  • Nýr heitavatnspottur tekinn í notkun í stað eldri
  • Lýsing endurnýjuð í sal, skipt yfir í led lýsingu
  • Neyðarlýsing sett í húsið

Íþróttamiðstöðin Varmalandi.

  • Almennu viðhaldi sinnt

Safnahús.

  • Útidyrahurð endurnýjuð ( inngangur á sýningu Börn í 100 ár)

Ráðhús Borgarbyggðar.

  • Gluggar endurnýjaðir að hluta
  • Málað að utan að hluta

Eyja. 

  • Stendur til að endurnýja þakjárn að hluta ( burstirnar 3 )
  • Undirbúa rif á frystihúsi

Þinghamar

  • Mála að utan að hluta

Hlíðartúnshús

  • Fjárhús endurbyggð

Almennt hafa framkvæmdir gengið vel en hér eru stærstu verkin talin upp það sem af er ári

 


Share: