Einkunnir – tillaga að nýju deiliskipulagi.

ágúst 24, 2016
Featured image for “Einkunnir – tillaga að nýju deiliskipulagi.”

Byggðarráð, í umboði sveitarstjórnar, samþykkir að auglýsa deiliskipulag fyrir fólkvanginn Einkunnir. Tillagan er sett fram á uppdrætti og í greinagerð dags. 1. júlí 2016. Skipulagið verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagstillagan er sett fram á einum uppdrætti þar sem einnig er greinargerð. Skv. Skipulagsuppdrætti dags. 01.07.2016, sem felur m.a. í sér að skipuleggja land til útivistar og almenningsnota með áherslu á náttúru.

Tillagan liggur frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14 í Borgarnesi frá 24. ágúst 2016 til 5. október 2016 og verður einnig aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is

Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og berast í síðasta lagi 5. október 2016 í Ráðhús Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi eða á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is

Deiliskipulag í Einkunnum – sérkort

Deiliskipulag í Einkunnum


Share: