Draumurinn í Valfelli

júlí 4, 2011
Draumurinn, gleðileikur með söng og dansi byggður á verki Shakespeares, Draumi á Jónsmessunótt verður frumsýndur föstudaginn 8.júlí í félagsheimilinu Valfelli.
Listasmiðjan bak við eyrað frumsýnir verkið í samstarfi við Tónlistarskóla Borgarbyggðar, Dansskóla Evu Karenar og sveitarfélagið Borgarbyggð. Það er Ása Hlín Svavarsdóttir leikstjóri og mastersnemi í við Listaháskóla íslands sem gerði leikgerðina og setur verkið á svið.
Þátttakendur í sýningunni eru á aldrinum 8-16 ára og sjá þeir um flesta þætti sýningarinnar, leik, söng, hljóðfæraleik og dans. Listasmiðjan fékk veglegan styrk frá Menningarráði Vesturlands á vormánuðum sem gerði hópnum kleift að leggja útí uppsetninguna. Eins og frumverk Shakespeares er yrkisefni Draumsins ástir og afbrýði, huliðsheimar álfa og grátbroslegir áhugaleikarar sem verða leiksoppar aðstæðna sinna.
Vistvæn markmið eru í hávegum höfð og allir búningar hannaðir uppúr notuðum fötum. Sýningar á verkinu verða fimm talsins, dagana 8.,9.,12.,13., og 14. júlí í félagsheimilinu Valfelli og miðasala er í síma 861-9904 eða 846 4341. Sýningar hefjast kl. 20.00 nema sýningin á laugardaginn 9. júlí hefst kl. 17.00.

Share: