Dagur leikskólans

febrúar 6, 2017
Featured image for “Dagur leikskólans”

Dagur leikskólans 2017 verður haldinn hátíðlegur í tíunda sinn mánudaginn 6. febrúar og verður dagurinn í ár helgaður því góða starfi sem fram fer í leikskólum landsins og dregið fram það sem hefur áunnist sl. ár t.d. með kynningarátakinu Framtíðarstarfið, sjá:  http://framtidarstarfid.is/

Samstarfsaðilar um Dag leikskólans eru Félag leikskólakennara, Félag stjórnenda leikskóla, Samband íslenskra sveitarfélaga, mennta- og menningarmálaráðuneytið og Heimili og skóli – landssamtök foreldra. Allir sem koma að málefnum leikskólans á einn eða annan hátt, eru hvattir til að halda Degi leikskólans á lofti og fylgjast vel með starfsemi leikskólanna þennan dag. Leikskólakennarar eru sérstaklega hvattir til að vekja athygli á störfum sínum.

Í Borgarbyggð eru fimm leikskólar starfandi, Andabær á Hvanneyri, Hnoðraból á Grímsstöðum, Hraunborg á Bifröst og Klettaborg og Ugluklettur í Borgarnesi. Þar er unnið fjölbreytt starf undir stjórn áhugasamra leikskólakennara og annars starfsfólks í samstarfi við börnin sem þar dvelja.

Við óskum leikskólum til hamingju með daginn!

Hér má sjá viðtal í Skessuhorni við þrjár systur í Borgarbyggð sem allar starfa á leikskóla:

http://skessuhorn.is/2017/02/06/dagur-leikskolans-er-dag/


Share: