Dagur íslenskrar náttúru – 16. september

september 15, 2011
Hvítá, tekið á Kaldadal_mm
Dagur íslenskrar náttúru verður haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn föstudaginn 16. september. Dagurinn er fæðingardagur Ómars Ragnarssonar. Felst í þessu viðurkenning á framlagi Ómars til náttúruverndar og almenningsfræðslu um mikilvægi íslenskrar náttúru sem og allra þeirra sem lagt hafa sitt af mörkum til að fræða um íslenska náttúru.
Sem dæmi um viðburði dagsins má nefna að á Hvanneyri verður boðið upp á göngu um fuglaverndunarsvæðið í Andakíl en umhverfisráðuneytið undirbýr nú tilnefningu svæðisins á lista Ramsarsamningsins um vernd votlendis.
Umhverfisráðherra mun í fyrsta skipti veita viðurkenningu sem kennd verður við Ómar Ragnarsson. Viðurkenningin verður veitt fyrir vandaða og eftirtektarverða umfjöllun eða fræðslu um náttúru Íslands og hana má veita fjölmiðli jafnt sem einstökum blaða- og fréttamönnum, dagskrárgerðarmönnum, textahöfundum, ljósmyndurum og kvikmyndagerðarmönnum.
 

Share: