Dagskrá Íþróttaviku Evrópu í Borgarbyggð dagana 23.–30. september

september 26, 2022
Featured image for “Dagskrá Íþróttaviku Evrópu í Borgarbyggð dagana 23.–30. september”

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hefur líkt og síðastliðin ár hlotið styrk frá Evrópusambandinu í gegnum Erasmus+ styrkjakerfið vegna Íþróttaviku Evrópu. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.

Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin 23. – 30. september ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum. Evrópubúar sameinast í vikunni undir slagorðinu #BeActive.

Í tilefni af Íþróttaviku Evrópu hefur UMSB sett saman skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskylduna. 


Share: