Dagforeldra vantar til starfa í Borgarbyggð

maí 8, 2015
Mikil þörf er fyrir þjónustu dagforeldra á skólasvæði leikskólans Hnoðrabóls í Reykholtsdal og í Borgarnesi.
Dagforeldrar starfa samkvæmt reglugerð nr. 907/2005, um daggæslu barna í heimahúsum.

Vakin er athygli á því að starfsemi dagforeldra er leyfisskyld. Fræðslunefnd Borgarbyggðar veitir leyfi.
Sótt er um leyfi hjá sviðsstjóra fjölskyldu- og fjármálasviðs á netfanginu aldisarna@borgarbyggd.is.
Nánari upplýsingar veitir Aldís Arna Tryggvadóttir í síma 433-7100. Einnig má nálgast upplýsingar á vef Borgarbyggðar á slóðinni: https://borgarbyggd.is/starfsemi/fraedslumal/dagforeldrar.

 

Share: