Byggðarráð – málefni háskóla í Borgarfirði

október 31, 2013
Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í morgun, fimmtudaginn 31. október voru málefni og framtíðarhorfur háskólanna í Borgarfirði rædd en í fjálagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar eru fyrirhugaðar breytingar á fyrirkomulagi skólanna.
 
Byggðarráð samþykkti eftirfarandi bókun:
Byggðarráð Borgarbyggðar skorar á menntamálaráðherra og ríkisstjórn Íslands að endurmeta afstöðu sína til háskólaumhverfisins í Borgarbyggð sem fram kemur í fjárlagafrumvarpi. Háskólarnir eru í lykilhlutverki hvað varðar atvinnulíf á Vesturlandi og tækifæri landshlutans til frekari sóknar.
Byggðarráð hefur á undanförnum dögum átt fundi með fjárlaganefnd, yfirstjórn Landbúnaðarháskóla Íslands, yfirstjórn Háskólans á Bifröst og mennta- og menningarmálaráðherra, sem kom í heimsókn í Borgarbyggð miðvikudaginn 23. okt.s.l.
Byggðarráð hefur óskað eftir fundi með þingmönnum NV kjördæmis um þessa grafalvarlegu afstöðu sem fram kemur í fjárlagafrumvarpinu varðandi bæði Bifröst og Hvanneyri.
Byggðarráð hvetur yfirstjórn Landbúnaðarháskóla Íslands og stjórn Háskólans á Bifröst til að standa vörð um sjálfstæði skólanna.
Samþykkt var að boða sem fyrst til íbúafundar um málefni háskólanna og var sveitarstjóra falið að undirbúa fundinn.“
 
 

Share: