Brúðuleikhús í Landnámssetri í kvöld

apríl 23, 2007
Í kvöld verður franski Turak brúðuleikhúshópurinn með sýningu á sögulofti Landnámsseturs. Sýningin er hluti af frönsku menningarhátíðinni Franskt vor á Íslandi og er fengin hingað í af Safnahúsi Borgarfjarðar og Landnámsetur leggur til aðstöðuna. Hér er sannarlega um óvenjulega listræna uppákomu að ræða sem fólk ætti ekki að láta framhjá sér fara.

Sýningin er jafnt fyrir fullorðna og börn. Hún hefst kl. 20.00 og aðgangur er ókeypis.

Share: