Breyttur afgreiðslutími í Safnahúsi

janúar 2, 2009
Afgreiðslutíma Safnahúss Borgarfjarðar hefur verið breytt og er þar nú opið alla virka daga frá 13-18. Breytingin felst í því að kvöldopnun hefur verið lögð niður, en áður var opið til 20.00 á þriðjudögum og fimmtudögum. Breytingin er gerð samkvæmt þeirri tillögu að fjárhagsáætlun sem nú liggur fyrir til afgreiðslu sveitarstjórnar um miðjan janúar, en þar er gert ráð fyrir umtalsverðum niðurskurði á sviði menningarmála hjá sveitarfélaginu.
Mynd: Guðrún Jónsdóttir

Share: